Svar hins siðaða samfélags hlýtur að vera að treysta sameiginlega innviði.
„Mörg lönd greiða það nú dýru verði að hafa holað heilbrigðiskerfi sitt að innan. Þau samfélög sem hafa treyst á að frjálshyggjan leysi allan vanda gjalda nú fyrir það með mannslífum,“ skrifar Drífa Snædal, forseti ASÍ, meðal annars í nýjum pistli.
„Sterk opinber kerfi
sem greitt er fyrir úr sameiginlegum sjóðum og allir hafa aðgang að, eru þau
kerfi sem best geta tekist á við Covid-19. Við eigum að greiða skatta með bros
á vör og líða engum að hlaupa með verðmæti í skattaskjól. Auðlindirnar þurfa að
nýtast okkur öllum. Það er aldrei mikilvægara en einmitt nú.
Í öllum kreppum og krísum reyna fjármagnseigendur að finna
tækifæri til að auðgast frekar á kostnað almennings. Við sjáum það núna þegar
fyrirtæki sem framleiða lífsnauðsynlegan heilbrigðisbúnað láta samfélög í
miklum vanda bjóða í öndunarvélar. Ógeðfeldara verður það varla. Svar hins
siðaða samfélags hlýtur að vera að treysta sameiginlega innviði og sækja
fjármagnið fyrir þeim til þeirra sem eru aflögufærir. Þannig stenst samfélagið
þessa prófraun.“