Indverjar eru duglegir að drekka Lassi með matnum sínum, dregur úr sterku kryddbragði sem virðist einkenna indverska matargerð.
Freyðandi banana mangó lassi
Hráefni:
• 1 bolli hreint lífrænt jógúrt
• ¼ bolli vatn
• 1 banani (frosin)
• 1 þroskuð mangó
• ½ tsk kardimommukrydd
• Ísmolar eftir smekk
• Hafrar (ef þú vilt hafa drykkinn þykkan)
• Kanill til að toppa þetta
Aðferð:
Setjið jógúrt í skál og hrærið vel upp í því, eða þar til að það verður „fluffý“ Setjið saman í blandarann, banana, mangó, kardimommur og ísmolana. Blandið saman þar til að það er orðið mjúkt og fínt. Bætið svo jógúrtinu og blandið þar til að þú færð drykkinn í þeirri þykkt sem þér þykir best. Þú getur sett matskeið af höfrum ef þú vilt meiri þykkt í drykkinn. Skreytt með kanill og jafnvel með muldum hnetum.