Við elskum Kjörís en þessir frostpinnar eru aðeins hollari og gott að eiga í frystirnum á góðum degi.
Þetta eru engin stórvísindi þessi uppskrift, uppáhalds ávextir barna og heimilisfólks.
- 2 – 3 kíví
- 1 pakki jarðaber
- 1 pakki bláber
- 1 – 2 appelsínur
- Kókósvatn
- Íspinnaform (fæst í IKEA)
Raðið jafnt ávöxtum á milli forma, passið að það fari ekki upp fyrir kantinn á forminu. Hellið svo kókósvatni yfir. Lokið og setjið í frystirinn og njótið síðar.