Hlíðarendi: Úr 300 íbúðum í 800
Þessi frétt birtist fyrir um ári síðan. Spurningar hljóta að vakna vegna frétta dagsins.
Borgarstjórn hefur samþykkt breytingar á skipulagi á Hlíðarenda. Þar er gert ráð fyrir að alls verði þar átta hundruð íbúðir, en upphaflega var gert ráð fyrir að þar yrðu þrjú hundruð íbúðir.
Sjáflstæðismenn í borgarstjórn voru ekki sáttir með ákvörðunina og bókuðu eftirfarandi:
„Miklar breytingar hafa verið gerðar á upphaflegum deiliskipulagshugmyndum á Hlíðarenda. Samþykkt deiliskipulag árið 2010 gerði ráð fyrir 300 íbúðum en árið 2014 fóru íbúðirnar úr 360 í 600 og nú er lagt til að fjölga þeim enn frekar eða upp í allt að 800 íbúðir. Nú liggur fyrir að vinna er í gangi í innanríkisráðuneytinu að skoða öryggishlutverk Reykjavíkurflugvallar sem hugsanlega gæti haft áhrif á heildarskipulagið á Hlíðarend. Þvi hefði verið betra að bíða með frekari deiliskipulagsákvarðanir þangað til niðurstöður úr þeirri vinnu liggja fyrir. Með þetta í huga greiða fulltrúar Sjálfstæðisflokks ekki atkvæði með deiliskipulagsbreytingunni.“
-sme