„Ég leyfi mér að fullyrða að einkavæðingarferlið, ef svo má að orði komast, hafi gengið vel undanfarin ár og til þess fallið að auka samkeppni og skilvirkni í þjóðfélaginu, neytendum til hagsbóta. Íslensku viðskiptabankarnir eru gott dæmi um slíkt. Heldur einhver að afl þeirra, sem sýnir sig ekki bara í lækkandi vöxtum og þjónustugjöldum heldur einnig í magnaðri útrás og starfsemi á erlendri grundu, hefði stóraukist eins og raun ber vitni undir væng ríkisvaldsins? Ég held ekki og hef ég þó prýðilega trú á sjálfum mér og öðrum stjórnmálamönnum! Það hefur sannast á undanförnum misserum að þessum rekstri er einfaldlega betur fyrir komið í höndum einkaaðila.“
Halldór Ásgrímsson, þá forsætisráðherra, á Viðskiptaþingi 2005.
Framhald síðar.