„Ég heiti Helga Möller, 64 ára Reykvíkingur en hef búið í Mosfellsbæ í 3 ár og elska það,“ skrifar Helga Möller.
„Ég býð mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og stefni á 3-4 sætið,“ skrifar hún.
„Ég er þriggja barna móðir og amma þriggja yndislegra barnabarna.
Ég er með stúdentspróf frá hagfræðisdeild Verslunarskóla Íslands, lærði þýsku í háskólanum í Dusseldorf og útskrifaðist í vor frá Bifröst.. Mætti kvenna.. stofnun og rekstur fyrirtækja.
Ég hef starfað sem flugfreyja og söngkona allt mitt líf, en söngkonuferillinn minn byrjaði þegar ég var 14 ára og flugfreyjuferillinn þegar ég var 19 ára. Bæði þessi störf hafa kennt mér svo ótal margt… umburðarlyndi, virðingu, þolinmæði, ást, vinskap og heiðarleika og einnig kennt mér hvað mannleg samskipti skipta miklu máli í lífinu og að vera trúr sjálfum sér.
Ég flutti í Mosfellsbæ af því að mig langaði til að fara út fyrir Reykjavík og vera nær náttúrunni og féll alveg fyrir Helgafellslandinu. Hér fékk ég allt sem ég var að leita að. Íbúð í fallegu fjölbýlishúsi með lyftu og bílakjallara, með góðu útsýni yfir Helgafellið og Úlfarsfellið, yndislegar gönguleiðir, Álafosshvosina og fossinn Álafoss.
Ég upplifði bæjarhátíðina okkar og fékk að skreyta svalirnar mínar í bláu í fyrsta skiptið á ævinni og allt svona lítið og persónulegt heillar mig við bæinn okkar. Mig langaði líka að kynnast fólkinu og ákvað því að sækja alla þjónustu sem ég get hér í Mosfellsbæ og hef kynnst góðu fólki í kringum það.
Hér er allt eitthvað svo miklu persónulegra, minna í sniðum og það var líka akkúrat það sem mig langaði til að fá.
Ég brenn fyrir því að Mosfellsbær verði enn betri kostur til að búa í. Ég brenn fyrir íbúum Mosfellsbæjar, gamla fólkinu, börnunum og fjölskyldunum. Ég brenn fyrir skipulagsmálum og kannski einna helst fyrir menningarmálunum sem eru mér ofarlega í huga.
Við eigum svo frábæran bæ og það væri yndisleg að fá að vera þátttakandi nætu 4 árin í gera bæinn okkar enn betri.
Ég vonast því eftir stuðningi ykkar og mun leggja mig alla fram að vinna í þágu bæjarbúa.“
Helga Möller, atoltur Mosfellingur.