Nú er hægt að læra á stuttu hnitmiðuðu námskeiði allt sem viðkemur SFX förðun og er það NN Make up Studio sem býður upp á þessi námskeið.
Nemendur læra allt sem viðkemur brelluförðun og einnig hvernig er að vinna á setti, með handrit sem er oftast það sem mestu máli skiptir að kunna, vinna og vera faglegur.
Kennarar eru þaulreyndir í bransanum og erum búnir að vera í faginu til fjölda ára og miðla af reynslu sinni á þessum skemmtilegum námskeiðum þær Sigríður Rósa og Steinunn Þórðardóttir
Nemendur gera svo lokaverkefni sem er alfarið þeirra hugmynd og útfæra hana á sinn hátt. Í enda námskeiðs er tekin studio mynd af Arnþór Birkisson ljósmyndara. Hann er þekktur fyrir sínar frábæru myndir en hann skapar sérstaka stemmingu með myndvinnslu sinni.
Eftir námskeiðið geta nemendur fari að vinna við kvikmyndir og stutt myndir og margir nemendur fengu strax verkefni til að spjara sig og byrjar fyrstu skrefin í bransanum. Mikil gróska er í kvikmyndaheiminum og vöntun á fólki sem er sjálfstætt starfandi.
Næsta námskeið verður yfir tvær helgar og tvo mánudaga, dagskóli og hægt að skrá sig á noname.is og fá allar upplýsingar þar.