Ekkert varð að áformum Icelandair um stóraukið Spánarflug í kjölfar fallsWOW air. Nú ætlar félagið hins vegar að bæta Tenerife við leiðakerfi sitt.
Hingað til hefur flug Icelandair til Tenerife takmarkast við leiguflug fyrir ferðaskrifstofur, þar á meðal systurfélagið Vita. Núna ætlar Icelandair þó að standa fyrir áætlunarferðum til spænsku eyjunnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flugfélaginu.