Stjórnmál
„Forystumenn flokksins og við kjörnir fulltrúar þurfum að hlúa að þessu merkilega starfi sem þar á sér stað. Hlusta á fólkið okkar og vera í stöðugu og nánu sambandi við það,“ segir í nýrri Moggagrein Diljár Mist Einarsdóttur.
Þar skrifar hún um flokksráðsfund Sjálfstæðisflokksins.
Yngri þátttakendur á fundinum óskuðu sérstaklega eftir að fá að ræða smánarlega stöðu Sjálfstæðisflokksins. Það var ekki leyft. Unga fólkinu var bent á að ræða frekar húsnæðismál. Sem var ekki þegið.
Þú gætir haft áhuga á þessum
Diljá Mist og aðrir ábyrgðarmenn flokksins fengu því ekki að hlusta á unga fólkið ræða söguleg vandræði Sjálfstæðisflokksins.