Hallur krefst afsökunar frá Mogganum
„Ég sem fyrrverandi blaðamaður & lesandi & unnandi Morgunblaðsins krefst afsökunar blaðsins á rógburði & ósannindum í garð enska félagsins ManCity,“ skrifar Hallur Hallsson fréttamaður.
„Ekki hægt að sanna sekt ManCity,“ segir blaðamaður á Mogganum Víðir Sigurðsson í grein í dag. Í annað sinn á nokkrum dögum fellur Mogginn í þá gryfju að virða að vettugi reglur réttarríkis & láta slúður stjórna penna sínum. Íþróttadómstóll Evrópu CAS sýknaði á dögunum MaCity fyrir að hafa brotið reglur UEFA.
Samt halda leiðarahöfundur & nú yfirmaður íþróttadeildar Mogga að ekki sé hægt sanna sekt ManCity líkt & félagið sé sekt þrátt fyrir sýknu. Enska félagið ManCity var sýknað af Íþróttadómstólnum CAS um að hafa rangt við. Þetta virðist Mbl ekki geta sætt sig við.
Þegar ég vann á Mogganum þá baðst blaðið afsökunar á mistökum, þar á meðal mistökum mínum. Þannig var það undir ritstjórn Matthíasar & Styrmis. Hafa skal það sem sannara reynist.
Í vestrænu réttarríki eru menn & lögaðilar saklausir uns sekt er sönnuð. ManCity var sýknað af dómstóli CAS af áburði & rógi um að hafa brotið teglur UEFA.
Samt heldur Mogginn að bera út róg & níð um enska félagið Manchester City. Svo langt hefur Mogginn seilst að segja ekki frá 100 stiga meti ManCity fyrr en löngu-löngu-löngu síðar – & þá eiginlega bara neðanmáls. Ólík var umfjöllun blaðsins um liðið sem varð meistari á dögunum.
UEFA byggði úrskurð sinn á m.a. netpóstum fyrir daga FFP reglur; stolnum netpóstum klipptum saman til gefa ranga mynd af atburðarás.
Mogginn hefur haldið í heiðri í yfir 100 ára sögu sinni að maður/lögaðili er ekki sekur fundinn fyrr en sekt er sönnuð.
Undanfarin ár hefur staðið yfir rógsherferð á hendur enska knattspyrnufélaginu Manchester City. Elítuklúbbar Evrópu fóru í rógsherferð gegn ManCity & UEFA dæmdi félagið í 2ja ára bann til þátttöku í Evrópukeppni.
ManCity áfrýjaði úrskurði UEFA til CAS sem sýknaði City um að hafa brotið gegn reglum & felldi niður 2ja ára bann.
CAS dæmdi félagið í £10M sekt fyrir að hafa neitað samvinnu en það gerði félagið á grundvelli þess að ásakanir voru reistar á stolnum tölvupóstum slitnum úr samhengi.
Þann 9. mars sl. þá gripu 9 félög á Englandi til þess ótrúlega úrræðis að skrifa CAS bréf & krefjast þess að CAS tæki mál ManCity ekki til meðferðar & ólög UEFA stæðu; meðal þeirra voru Liverpool, ManUtd, Arsenal & Chelsea.
Félögin sumsé vildu víkja reglum réttarríkisins til hliðar.
Aldrei í sögu knattspyrnu hefur félag mátt sæta viðlíka ofsóknum sem ManCity. Meira um það síðar.