Sigurjón M. Egilsson:
Nú má spyrja. Hvert eftirtalda þriggja einstaklinga er mesti róttæklingurinn. Nöfn þeirra eru talin upp eftir stafrófsröð. Davíð Oddsson, Halldór Benjamín og Sólveig Anna.
Aumara verður það ekki en koma ítrekað í Karphúsið og vera bundinn á báðum höndum. Slíkt hefur hlutverk Halldórs Benjamíns verið í deilunni gegn Eflingu. Eina sem okkur vantar að vita er hver batt Halldór Benjamín. Hans húsbændur? Vilhjálmur Birgisson? Hver batt hann? Svar óskast.
Meira að segja ritstjóri Moggans er að vakna til lífsins. „Samtök atvinnulífsins (SA) vilja ekki semja á öðrum nótum en þegar hefur verið gert við þorra íslenskra launþega, en Efling hefur að yfirlýstu markmiði að semja á allt annan veg,“ segir í leiðara Moggans.
Hann gat ekki látið ógert að kasta drulluköku í áttina að Sólveigu Önnu sem hitti ekki í mark frekar en fyrri tilraunir: „Fyrir nú utan augljósan áhuga Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, á að letra nafn sitt í helgisögur róttæklinga.“
Nú má spyrja. Hvert eftirtalda þriggja einstaklinga er mesti róttæklingurinn. Nöfn þeirra eru talin upp eftir stafrófsröð. Davíð Oddsson, Halldór Benjamín og Sólveig Anna.
Af hverju er Davíð með í þessu? Jú, hann hefur kallað eftir lagasetningu. Sem hann hikaði ekki við að gera þegar hann var forsætisráðherra.
Til að rökstyðja lagasetningu núna segir Davíð í leiðaranum:
„Engum átti því að koma á óvart að þessum aðilum vinnumarkaðarins gengi ekkert að semja, sín á milli eða fyrir tilstilli ríkissáttasemjara. Séu þeir ófærir um að semja þarf önnur ráð.“
Það má gera athugasemdir við þetta. Sólveig Anna kom með útfærðar tillögur á sáttafundina og gaf eftir, aftur og aftur allt í von um að Halldóri Benjamín tækist að leysa af sér böndin og taka þátt í sáttaumleitunum. Því miður varð það ekki og við stöndum nú frammi fyrir samningsvilja Sólveigar Önnu og Halldóri Benjamín, bundnum á báðum höndum. Það er ömurlegt.