- Advertisement -

Hagvöxtur neikvæður um 4 prósent í 1. ársfjórðungi!

Ef ég væri forsætisráðherra, myndi ég auglýsa stöðu Seðlabankastjóra í hvelli.

Ole Anton Bieltvedt.

Ole Anton Bieltvedt skrifar:

Fyrir nokkru var mér sýnd sjónvarpsupptöka frá Stöð 2 frá í maí 2008. Sölvi Tryggvason átti þar viðtal við m.a. Ásgeir Jónsson, sem þá var yfirmaður greiningardeild Kaupþingsbanka.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þá varð mér hugsað til þess, sem Ásgeir Jónsson sagði…

Þegar Ásgeir var spurður um þann orðróm, að íslenzku bankarnir stæðu illa, taldi hann, að slíkt tal væri bara „hystería“, hans orð, rekstur bankanna gengi vel, góður hagnaður hefði orðið 1. ársfjórðung 2008, og væru horfur fyrir árið þokkalega góðar.

Allir vissu, hvað svo gerðist sama haust.

Í framhaldinu varð mér hugsað til þess, að þessi maður er nú æðsti maður íslenzkra banka- og peningamála; valdameiri um efnahagsmál þjóðarinnar, og um leið afkomu og velferð landsmanna, en flestir eða allir aðrir.

Þá varð mér hugsað til þess, sem Ásgeir Jónsson sagði í viðtali við blaðið nokkru eftir skipan hans í Seðlabankastjóraembættið 2019:

„Rétturinn til þess, að gefa út eiginn mynt, er grundvallarhluti af fullveldi hvers lands“

Ýmsum finnst kannske, að þetta sé flott sagt, en fyrir mér eru þessi ummæli meira í ætt við froðusnakk og þjóðerninsrembing, en alvörutal alvörumanna. Með þessu vildi Ásgeir réttlæta það, að við værum með íslenzku krónuna og héldum fast í hana. Það væri dýrmætur hluti af okkar fullveldi.

Hvað má þá segja um Þjóðverja, sem lögðu af sitt ofursterka Þýzka mark og fóru yfir í sameiginlega mynt með 24 öðrum þjóðum; Evruna!? Skyldi Þjóðverjar og hinar 24 Evru-þjóðirnar, sem margar eru meðal helztu og merkustu þjóða álfunnar, þá bara hafa fargað sínu fullveldi!? Bara hent því í ruslatunnuna!?

Þetta snakk fór líka illa í mig, og ekki fannst mér það lofa góðu frekar en „hysterían“ 2008.

Yfir í atburðarás og stöðu, sem er nær okkur í tíma:

Í blaðinu 27. júní sl. stóð þessi frétt:

Í þessu ljósi er sú staðreynd, að Seðlabanki…

„Verðbólga síðustu mánuði mæl­ist nú 5,8% og lækkaði úr 6,2% í síðasta mánuði. Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis mæl­ist nú 4%. Hef­ur verðbólg­an ekki verið svona lág síðan í janú­ar 2022“.

Hagfræðinga og efnahagssérfræðinga greinir á um það, hvort húsnæðiskostnaður skuli vera hafður með, eða ekki, þegar kostnaður framfærslu, eða verðbólga, er reiknaður.

Ein ástæða þess er sú, að vaxtakostnaður spilar mjög sterkt inn í húsnæðiskostnað – byggingarkostnað, fjárfestingu –  og, ef húsnæðiskostnaður er með í verðbólguútreikningi, vextir eru reiknaðir með, og þeir hækka, þá hækkar framfærsluvísitala, verðbólgan eykst, sem aftur kallar á vaxtahækkun skv. aðferðafræði Seðlabanka. Vítahringur fásinnu tekur völd!

Ef við leggjum því húsnæðiskostnað til hliðar, þá er verðbólgan nú 4%. Á sama tíma eru stýrivextir 9,25%. Margir hagfræðingar hafa talið það góða þumalfingursreglu, að stýrivextir og verðbólga væru á svipuðu róli í venjulegu árferði. Kjörtölur 2% verðbólga og 2% stýrivextir. Oft eru stýrivextir líka undir verðbólgu, eins og var lengi hér og víðar.

Í þessu ljósi er sú staðreynd, að Seðlabanki og Peningastefnunefnd heldur stýrivöxtum í 9,25%, á sama tíma og verðbólga er 4%, og þó 5,8% væri, fyrir mér hrein truflun. Yfirkeyrzla. Glóruleysi.

Flestar þjóðir stefna á sem mestan hagvöxt, aukna verga landsframleiðslu, VLF, því, aðeins með þeim hætti, stærri köku, verður meira til skiptanna; aðeins þannig er hægt að bæta kjör manna og auka velferð. Aukinn hagvöxtur er því hið eilífa aðal keppikefli stjórnvalda, viljinn til að bæta efnahagslega afkomu og -öryggi þegnanna.

Fyrir mér er þetta skandall.

Glórulausir stýrivextir Ásgeirs Jónssonar & Co hafa nú, hins vegar, ollið því, að hagvöxturinn, sem var 8.9% 2022 (reyndar líka þökk fleiri vinnandi höndum, þessi tala því ekki alveg marktæk), og fór svo niður í 4,1% 2023, er kominn í MÍNUS 4% á 1. ársfjórðungi 2024. Stórfelldur samdráttur hefur átt sér stað í hagkerfinu, kakan til skiptanna hefur verið skert verulega, ég segi, vegna skilningsleysis eða heimsku. Fyrir mér er þetta skandall.

Okurvextir síðustu mánaða og missera hafa dregið úr getu atvinnuvegnanna til að sækja fram, skapa meiri verðmæti, hafa spillt fyrir ferðaþjónustunni, en hennar rekstur og fjárfestingar þarf auðvitað að fjármagna, með þessum dýru peningum, og hún kemst ekki hjá, að færa þann aukakostnað inn í sitt verðlag, sem aftur leiðir til þess, að Ísland er orðið of dýrt fyrir fjölda ferðamanna. Margir fara nú annað.

Einkaneysla, sem oft ber uppi hagkerfin, hefur auðvitað heldur engan kraft, þar sem umframfé almennings, sem er háð lánsfé með sitt líf og sína afkomu, fer allt í að greiða aukna vexti.

Seðlabanki hefur í reynd ekki aðeins fært stórfellda fjármuni af skuldurum landsins, með ofbeldi, yfir til banka og fjármagnseigenda, heldur hefur hann líka lagt dauðs manns hönd á íslenzkt þjóðfélag!

Þeim manni, sem á að tryggja efnahagslega velferð landsmanna, hefur með glóruleysi og yfirkeyrslu tekizt að snúa góðum hagvexti í alvarlegan samdrátt og minnka þar með þá tertu, sem þjóðin hefur til skiptanna.

Ef ég væri forsætisráðherra, myndi ég auglýsa stöðu Seðlabankastjóra í hvelli.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: