- Advertisement -

Hættir í Viðreisn – segir þau ekki leysa nein vandamál

Guðmundur Þ. Ragnarsson skrifar:

Það er komin niðurstaða hjá mér hvað ég ætla að kjósa. Ég mun ekki kjósa Viðreisn þó ég hafi verið í fjórða sæti í Reykjavík norður í síðustu kosningum. Mun segja mig úr flokknum vegna stefnuleysis hans í öllum málaflokkum. Ég get ekki áttað mig á því hver stefnan er, önnur en að segja það sem talið er að kjósendur vilji heyra til ná í atkvæði og komast í ráðherrastóla. En samt að segja ekki neitt um það hvað á að gera eða það eru engar raunhæfar lausnir til að setja fram.

Áframhaldandi stuðningur við þéttingarstefnu á höfuðborgarsvæðinu mun eingöngu viðhalda verðbólgu og hærri vöxtum. Stjórnmálaflokkur sem ætlar ekki að viðurkenna þau efnahagsmistök sem búið að gera þar, er ekki að fara að leysa nein vandamál. Hvað ég ætla að kjósa mun ég ekki gefa upp.

Er búinn að kynnast mörgu frábæru fólki þennan tíma, en nú skilja leiðir.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: