Ég bíð eftir að sjá hvaða úrlausn ríkisstjórnin býður einmitt þessum hópi.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar:
Á rölti mínu um veraldarvefinn rakst ég á eftirfarandi sem haft er eftir rithöfundinum Marianne Wiliamsson. Ég tek undir orð hennar, og vona að stjórnvöld setji fólkið í fyrsta sæti. Sérstaklega þarf að huga að minnihluta hópum s.s. langveikum og fötluðum, fólki sem stjórnvöld hafa sett í þá stöðu að þurfi að leita til hjálparsamtaka með sjálfsagðar nauðsynjar eins og mat sem allir ættu að hafa efni á. Ég bíð eftir að sjá hvaða úrlausn ríkisstjórnin býður einmitt þessum hópi. Hækkun örorkulífeyris er lífsnauðsyn, ég hvet stjórnvöld til að taka nú í þessari kreppu utan um það fólk (öryrkja) sem tók á sig miklar byrðar í síðustu kreppu og hafa ekki fengið leiðréttingu enn. Koma svo stjórnvöld!
- *Yfirvöld víða hafa komið berskjölduð fram og sagt að þeir séu ekki í stakk búnir fyrir þetta ástand. Af þessum sökum er eðlilegt að við setjum fólkið í landinu í fyrsta sæti en ekki fjármálamarkaðinn, í aðgerðum okkar til að vernda fólkið í landinu.
- *Með faraldri sem þessum sjáum við betur en oft áður hversu mikilvægt það er að vera með sterkt og gott heilbrigðiskerfi fyrir alla.
- Hugsið og talið jákvætt til þeirra sem standa í framlínunni í faraldrinum. Læknar, hjúkrunarfólk, sjúkraliðar og heilbrigðisstarfsfólk þarf á bænum ykkar að halda, ekki gagnrýni.
- *Ríkisstjórn sem setur fólkið sitt í fyrsta sæti ætti eins að vera sjálfsagður hlutur í stjórnskipun landsins. Hreint loft ætti að vera aðgengilegt öllum og svo mætti lengi áfram telja.