Sá sem lést í árásinni hörmulega við Barðavog síðastliðinn laugardaginn hét Gylfi Bergmann Heimisson. Greint var frá andláti hans í Fréttablaðinu í dag.
Gylfi var fæddur árið 1975 en hann lætur eftir sig fjögur börn á aldrinum tveggja til 24 ára. Hann bjó í kjallara hússins við Barðavog en hann festi kaup á íbúðinni í mars 2021.
Gylfi var þekktur í veitingageiranum. Hann kom meðal annars að hinum vinsælu veitingastöðum Gastro Truck en tveir vagnar staðarins voru starfrækir í Mathöllinni Höfða og Mathöllinni Granda.
Miðjan vottar vinum og aðstandenum Gylfa samúðar.