Mjög góð og rúmgóð íbúð á fjórðu hæð í Hvassaleitinu. Íbúðin skiptist þannig: Stofa, borðstofa, eldhús, þrjú góð svefnherbergi, tvö baðherbergi og forstofa. Tvær sér geymslur fylgja einnig í kjallara. Mikið endurnýjuð íbúð ma. nýtt parket. Ný eldhúsinnrétting og tæki. Baðið tekið í gegn nýjar flísar ofl.
Skipulag er ekki samkvæmt teikningum en m.a. er búið að opna eldhúsið meira og fjarlægja eitt herbergi.
Komið er inn í forstofu með fataskápum. Á vinstri hönd er opið inn í parketlagt eldhús.
Þar við hliðina á er parketlagt svefnherbergi með góðum fataskápum.
Hjónaherbergið er rúmgott með góð skápaplássi og parket á gólfi.
Gott baðherbergi með baðkari og sturtu aðstöðu.
Stofa og borðstofa parketlögð. Úr stofu er gengt út á suðvestur svalir með fallegu útsýni.
Parketlagt herbergi á gangi með góðum skápum.
Falleg eldhúsinnrétting frá Fríform. Sjá nánar hér um þennan gullmola.