Gullfiskaminnið er því algjört og við sem þjóð alltaf jafn hissa.
Tómas Guðbjartsson skrifaði:
Um daginn voru allir rosalega hissa og móðgaðir yfir því að
Ísland væri eitt Evrópuríkja á vafasömum lista tengdum peningaþvætti. Samt
höfðu ýmsir, m.a. sérstakur saksóknari, bent á þetta ítrekað, m.a. á visir.is í
janúar 2016. Tíðindi sl. daga virðast benda til þess að eitthvað meiriháttar sé
að hjá eftirlitsaðilum stjórnvalda hér á landi því stórfyrirtæki komast
greinilega upp með alls konar peningafiff og moðreyk. Samt er aðeins áratugur
frá hruni. Gullfiskaminnið er því algjört og við sem þjóð alltaf jafn hissa. Á
sama tíma bíður orðspor okkar enn frekari hnekki erlendis. Sennilega er gests
auga gleggra en lokað.