Fréttir

Guðni segir Guðlaug Þór hvorki vera með belti né axlabönd

By Miðjan

April 15, 2019

Svo ætlum við að fara að flytja hér inn hrátt kjöt og kannski með því eyðileggja íslenskan landbúnað.

Fyrirvarar sem Guðlaugur Þór segist hafa fengið vilyrði fyrir vegna orkupakkans og fullyrti að þar með væri ísland komið með belti og axlabönd eru blekking. Þetta segir Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra, en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu, að því er fram kemur á vefsíðu útvarpsstöðvarinnar.

Guðni sagði orkupakkamálið í raun stærra en Icesave málið enda sé búið að koma málinu fyrir á þann hátt að það fari ekki fyrir forseta og því eigi þjóðin ekki þess kost að fá að kjósa um málið, og verði pakkinn samþykkur og mál komi upp þar sem tekist yrði á um fyrirvarana myndu þeir ekki halda.

Guðni sagði einnig að segja mætti að Ísland væri þegar komið í ESB enda hafi ýmsar reglur sambandsins þegar verið innleiddar hérlendis og að undir það hafi Íslendingar beygt sig.  Þá bendir Guðni á að nú þegar séu komin fram hundruð umsókna um leyfi til þess að setja upp smávirkjanir. „Tröllin taka landið, þau eru farin að yfirtaka jarðirnar svo það er allt komið í gang, svo ætlum við að fara að flytja hér inn hrátt kjöt og kannski með því eyðileggja íslenskan landbúnað,“ sagði Guðni Ágústsson á útvarpi Sögu í dag.

Hér er samtal þeirra Arnþrúðar Karlsdóttur og Guðna Ágústssonar.