Guðlaugur Þór vill loka göngudeildinni
Innan utanríkisráðuneytisins er „göngudeild“. Hana skipa sendiherrar sem hafa ekki sendiráð. Eru í einhverskonar geymslu í ráðuneytinu við Rauðarárstíg. Guðlaugur Þór Þórðarson vill að eftirleiðis verði ekki fleiri sendiherrar en sem nemur fjölda sendiráða. Engir verði á „göngudeildinni“.
Lesa má þetta í Mogganum í dag:
-Gunnar Pálsson sendiherra er hvassari í gagnrýni sinni á frumvarpið og segir tillögurnar líklegar til að veikja stöðu utanríkisþjónustunnar og hafa neikvæð áhrif til lengri tíma litið. ,,Það er illa rökstutt, ruglingslegt og mótsagnakennt, auk þess sem það kyndir undir tilefnislausa tortryggni í garð einnar starfsstéttar stjórnarráðsins,“ segir Gunnar, sem leggur til að það verði dregið til baka og þess í stað ráðist í yfirgripsmeiri skoðun á starfsháttum utanríkisþjónustunnar, m.a. með hliðsjón af nútíma mannauðsstjórnunarsjónarmiðum.-
Enginn utanríkisráðherra hefur verið eins stórtækur við skipan nýrra sendiherra og Davíð Oddsson. Hann sat í um eitt ár og skipaði ellefu sendiherra á þeim tíma. Um einn á mánuði.
Á því ári sem Davíð Oddsson var utanríkisráðherra skipaði hann fjölda nýrra sendiherra.
Hér er upprifjun frá þeim tíma:
„Á undanförnum árum hafa pólitískar embættisráðningar í utanríkisþjónustunni aukist til muna. Af forstöðumönnum á 23 sendiskrifstofum, þar sem rekið er sendiráð, fastanefnd eða aðalræðisskrifstofa eða starfsmaður með sendiherratitil skipaður í starf hjá alþjóðastofnun, voru í mars 2007 tíu pólitískt skipaðir eða um 45 prósent,“ segir í bréfi starfsmannaráðs utanríkisráðuneytisins eftir að Davíð lét af störfum.
Þar segir og að starfsmannaráðið að þetta háa hlutfall eigi sér ekki hliðstæðu í öðrum vestrænum ríkjum.
Einnig segir í bréfinu að pólitískt skipaðir sendiherrar sitji lengur í embættum erlendis en faglega ráðnir kollegar þeirra. Hinir pólitískt ráðnu taki að jafnaði ekki við skrifstofustjórastörfum í ráðuneytinu, líkt og sendiherrar úr röðum embættismanna geri.
Á sama tíma var gnótt sendiherra án sendiráða.
„Fullyrðing Starfsmannaráðsins þess efnis að pólitískum ráðningum hafi fjölgað á síðustu árum á við rök að styðjast. Davíð Oddsson skipaði tíu sendiherra á því rúmlega eina ári sem hann var utanríkisráðherra. Þar af voru tveir embættismenn úr ráðuneytinu sem hættu fljótlega. Af hinum átta voru sjö ráðnir á augljósum pólitískum forsendum. Þetta voru þeir Albert Jónsson og Ólafur Davíðsson sem komu með Davíð úr forsætisráðuneytinu. Í þessum hópi voru jafnframt Markús Örn Antonsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Sighvatur Björgvinsson, Kristján Andri Stefánsson og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,“ sagði í blaðagrein frá þessum tíma.
Allt þetta fólk var skipað í stöðu sendiherra, án þess að hafa starfað í utanríkisráðuneytinu til lengri tíma. Í bréfinu til ráðherrans segir að þetta stingi í stúf við þá áherslu að forstöðumenn á sendiskrifstofum hafi aflað sér víðtækrar reynslu í utanríkisþjónustunni.
Á sama tíma var gnótt sendiherra án sendiráða, þeir voru á „göngudeildinni“ í ráðuneytinu við Rauðarárstíg.
-sme