Eftir að grunur kom upp um tilfelli af berklum hér á landi er til skoðunar hvort um sé að ræða fjölónæma berkla, en þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur gerir ráð fyrir að senda þurfi sýni til út fyrir landsteinana til að staðfesta greininguna; en hingað til er aðeins vitað um eitt tilfelli.
„Það er bara í skoðun. Þetta er það sem hefur verið bent á, þegar það kemur meiri flóttamannastraumur eins og núna undanfarið, þá er þetta eitthvað sem við getum búist við að sjá og það er tilfelli til skoðunar,“ segir Þórólfur í stuttu spjalli við mbl.is.
Hann bætir við að það sé ekki nýtt að berklasmit greinist hér á landi í seinni tíð; hefur það gerst nokkuð reglulega síðustu árin.
„Auðvitað er það erfiðara þegar það eru að greinast svona fjölónæmir berklar og það er það sem er í skoðun; það er bara verið að gera alla réttu hlutina í kringum það.“
Ekki er auðvelt að eiga við fjölónæma berkla; þeir eru ónæmir fyrir hefðbundnum berklalyfjum og eru stigvaxandi vandamál um heim allan og hér er um að ræða afar alvarlegan sjúkdóm sem erfitt og kostnaðarsamt er að meðhöndla.