Í dag barst mér þessi mynd af máltíð sem eldri borgurum í Reykjavík er ætlað að gera sé að góðu.
Viðar Eggertsson skrifar:
Í dag tók ég sæti í Öldungaráði Reykjavíkurborgar sem einn af þremur fulltrúum Félags eldri borgara.
Meðal mála var á dagskrá erindi sem ég hafði sent er varðar máltíðir sem eldri borgurum eru boðnar upp á hjá borginni.
Eftirfarandi bókun lét ég frá mér á fundinum:
Tillaga
„Öldungaráð Reykjavíkurborgar felur velferðarsviði að láta gera könnun utanaðkomandi, óvilhallra og til þess bærra aðila, á máltíðum sem velferðarsviðið býður eldri borgurum upp á úr eldhúsi borgarinnar.
Sérstaklega skal skoðað hversu vel máltíðirnar mæta lýðheilsumarkmiðum Embættis landlæknis og eins hvort fjölbreytni á máltíðum hvers dags sé nægileg með tilliti til heilsufars svo sem sykursýki og aðra algengra sjúkdóma meðal eldri borgara.“
Í dag barst mér þessi mynd af máltíð sem eldri borgurum í Reykjavík er ætlað að gera sé að góðu.
Samkvæmt vef eldhússins:
„Gratíneruð ýsa með kartöflumús og hvítlaukssmjöri“