Vilhjálmur Birgisson skrifaði:
„Það er grafalvarlegt að horfa upp á Viðreisn, flokk sem kennir sig við frjálslyndi og atvinnufrelsi, ætla að beita ríkisvaldinu til að banna heila atvinnugrein sem á sér langa sögu hér á landi og hefur skapað gríðarleg verðmæti, störf og útflutningstekjur. Nú stendur hvalvertíð yfir, á annað hundrað manns hafa þar atvinnu og meðallaun verkafólks eru um 2,4 milljónir króna á mánuði. Þetta snýst um atvinnufrelsi, atvinnuöryggi, verðmætasköpun og lífsafkomu fólks og fjölskyldna á Vesturlandi.
Og á hvaða forsendum á að banna þessa atvinnustarfsemi? Ekki vegna þess að vísindin segi að veiðarnar séu ósjálfbærar. Þvert á móti byggja þær á vísindalegri ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu. Þess í stað er enn dreginn fram sami hræðsluáróðurinn um að ferðamenn hætti að koma, orðspor Íslands bíði skaða, viðskipti séu í hættu og nú jafnvel óstaðfestar hótanir um tolla. Þessi hræðsluáróður hefur verið endurtekinn árum saman án þess að standast eina einustu alvarlega skoðun.
Málið er enn alvarlegra vegna þess að hér eru stjórnarskrárvarin atvinnu- og eignarréttindi undir, eins og sérfræðingar stjórnvalda sjálfra hafa bent á. Samt ætlar Viðreisn að halda áfram og banna heila atvinnugrein með lagasetningu.
Og það verður ekki horft fram hjá því að þetta fellur vel að ESB-vegferð Viðreisnar, enda gildir þar regluverk sem leggur almennt bann við atvinnuhvalveiðum.
Það er grafalvarlegt þegar stjórnmálamenn telja sig geta bannað heila atvinnugrein, fórnað verðmætasköpun og tekið atvinnu og lífsafkomu af fólki á grundvelli pólitískrar hugmyndafræði og hræðsluáróðurs sem stenst ekki skoðun. Ef vísindin segja að nýtingin sé sjálfbær eigum við Íslendingar að ráða nýtingu okkar eigin sjávarauðlinda. Punktur.“