Reykjavík ver talsvert miklum peningum til ýmissa styrkja. Gróður fyrir fólk fær nú mest, fjórar milljónir. Kannski er eftirtektarverðast að Götubitinn fær þrjár milljónir til að standa að götubitasölu á Miðbakka.
Velta má vöngum yfir hvað veitingamönnum í næsta nágrenni kann að þykja um þetta. Þeir verða að vera með ótal leyfi, uppfylla allskyns skilyrði og fleira. Annað gildir um götubitana.
Að venju greip Vigdís Hauksdóttir til andmæla:
„Styrkveitingar borgarráðs og annarra ráða hjá Reykjavíkurborg eru mjög ógagnsæjar og mikil hætta er á að ekki sé gætt jafnræðis við úthlutun fjármagns. Það fyrirkomulag að veita „skyndistyrki“ til verkefna eða einstaklinga án ítarlegs rökstuðnings er gjörsamlega galið.“