Greinar

Gleðin með einokunina getur orðið skammvinn

By Aðsendar greinar

July 12, 2024

Sigurjón Þórðarson, varaþingmaður Flokks fólksins, skrifaði:

Stjórnmál „Hvernig er hægt að bjóða upp á svona málflutning að það sé í þágu almennings að grein sem nýtur innflutningsverndar og fær ríkulega ríkisstyrki sé einnig undanþegin samkeppnislögum.

Málið fór nánast í gegnum bakdyr Alþingis og var drifið áfram af aðilum sem sátu hringinn í kringum borðið og jú Sjálfstæðisflokknum sem boðar frjálsa samkeppni fyrir suma.

Hættan fyrir íslenskan landbúnað er augljóslega minnkandi stuðningur almennings við greinina sem mun leiða af sér minnkandi stuðning og aukinn innflutning.“