Þetta glæsileg reiðhjól kostar, með 200 evru afslætti, rúmar 230.000 krónur í fínni íþróttvöruverslun á Spáni.
Hjólið sem er allt hið vandaðasta er með Bosch rafhleðslu. Vafalaust frábært farartæki.
Þú gætir haft áhuga á þessum
Leitaði hvað „sambærilegt“ hjól kostar á Íslandi. Hér er alls ekki um vísindalegan samanburð að ræða.
Verðmunurinn á þessum tveimur hjólum er eigi að síður ævintýralegur.
Hvers vegna allt kostar svo mikið, mikið meira á Íslandi er stór spurning. Eðlilegast er að halda að hér sé um okur að ræða eins og forstjóri IEKA á Íslandi lýsti svo vel.
Sá sem þetta skrifar á rafhjól frá IKEA, sem kostaði 99.990 krónur og er fínt.