Allt var þetta gert til að skapa skelfingu meðal Palestínubúa á svæðinu – og það heppnaðist.
Birgir Dýrfjörð skrifaði:
Það misbýður skynsemi flestra að eltast við og svara þeim tröllauknu ósannindum sem nú birtast á vefmiðlum til varnar glæpaverkum Ísraela.
Þar er því haldið fram að upphaf skipulagðra morða Ísraela á mæðrum og börnum í Palestínu sé vegna framgöngu Hamas-liða. þeim ósannindum er sífellt haldið fram.
NÆTURMORÐIN
Staðreyndin er sú að það voru hermdaverkasveitir Gyðinga sem hófu fjöldamorðin. Nú þrætir engin ærleg og upplýst manneskja um þá staðreynd.
Nærri Jerúsalem var lítið friðsælt 250 manna þorp sem hét Deir Yassin. Þar áttu palestínumenn heimili og ræktuðu ólífutré sér til framfæris. Þeir lifðu í friði ætta sinna og áttu sér einskis ills von.
Þó gerðist það um nótt að hermdarverkahópur Gyðinga gerði öllum að óvörum hljóðláta næturárás með sveðjur sína og skáru alla menn allar konur og öll börnin í þorpinu og Gyðingarnir bættu um betur. Þeir misþyrmdu líkum fólksins, skáru undan karlmönnum ristu upp kviði á konum og hjuggu höfuð af börnum.
Allt var þetta gert til að skapa skelfingu meðal Palestínubúa á svæðinu – og það heppnaðist.
Hermdaverkasveitir Gyðinganna létu þau boð út ganga að önnur þorp fengju sömu meðferð ef íbúarnir hypjuðu sig ekki burtu. Í framhaldi af þeim líflátshótunum flúðu 750 þúsund Palestínubúar heimili sín og ætta sinna. Þannig varð þéttbýlið á Gasaströndinni til. Fleiri endurtekin morðæði hermdaverkasveita Gyðinga knúðu svo Palestínumenn til sjálfsvarnar. Þá varð Hamas til

ÁLIT HEIMSINS
Í september 2026 komst óháð rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna að þeirri niðurstöðu að Ísrael hefði framið og HÉLDU ÁFRAM að fremja þjóðarmorð gegn Palestínumönnum á Gaza.
Ísraelsk stjórnvöld hafa hafnað þeirri niðurstöðu dómsins..
Með dómi sameinuðu þjóðanna hafa núverandi stjórnendur Ísrael kallað yfir alla þjóð sína nafngiftina Glæpamenn. Það er skelfilegt því að það er ekki rétt.
Nú reynir á okkur sem hjá stöndum, að sýna hinum venjulega Ísraela að við viljum trúa að sökin sé ekki hans,
ES: Húrra fyrir ræðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í New York.