Stjórnmál/fjölmiðlar:
Jóhann Þorvarðarson skrifaði:
Leiðari Morgunblaðsins í dag sýnir sérstakt sjálfstraust og þykist vera til þess bær að vera fjármálaviti þjóðarinnar án þess að ónáða lesandann með einni einustu tölu, samanburði eða útfærðri tillögu. Morgunblaðið lætur slíka smámuni ekki tefja ráðgjöfina. Ríkisstjórnin á víst að láta reka á reiðanum í rekstri ríkisins, aðhaldið er „orðin tóm“ og útgjöldin þenjast út þó þau dragist saman. Málið er þar með afgreitt af hálfu Moggans.
Hvar eru gögnin? Væntanlega í fríi, eða kannski líka komin á styttri vinnuviku sem Mogginn þolir svo illa.
Svo kemur Flokkur
fólksins til sögunnar.
Leiðarinn gengur síðan frá efnahagsmálunum með hinni alkunnu þriggja þrepa aðferð: nefna forsætisráðherra, benda á verðbólgu og vexti og lýsa málið leyst. Þetta er vissulega sparneytin greining. Hún sparar orsakasamhengi. Efnahagsmál verða þó ekki skýrð með því að velja einn sökudólg, hrista höfuðið hátíðlega og láta tónfallið annast afganginn. Vilji blaðið sýna fram á að tiltekin ríkisútgjöld hafi valdið tiltekinni verðbólgu eða tafið vaxtalækkanir þarf meira en upphrópunarmerki í sparifötum. Það þarf tölur, tímalínu og rökstudda orsakakeðju.
Svo kemur Flokkur fólksins til sögunnar, eins konar svissneskur vasahnífur leiðarahöfundarins. Hann á að skýra allt án þess að neitt þurfi að útskýra. Úr þeirri átt kemur samkvæmt blaðinu „ekkert“ nema frekari kröfur um útgjöld og samstarfsflokkarnir eru sakaðir um að réttlæta þær. En hvaða kröfur? Hversu háar? Hvaða áhrif? Lesandinn fær ekki að vita það, enda væri hálfgerð ókurteisi að trufla svo snyrtilega fordæmingu með upplýsingum. Flokksnafnið er látið mæta til vinnu í stað staðreyndanna.
Sá sem vill veita þjóðarbúinu rekstrarráðgjöf gæti byrjað á þeirri róttæku nýjung að taka til í sínu eigin bókhaldi í stað þess að tapa milljörðum á milljarða ofan. Sofandaháttur í rekstri blaðsins blasir við öllum, eins og sífelldar hlutafjáraukningar bera vitni um. Kannski er tímabært að nefna Morgunblaðið sínu rétta nafni: Moggadon.