Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum þann 11.maí að veita grunnskólum Reykjanesbæjar fjárveitingu á næsta skólaári til kaupa á námsgögnum til grunnskólanna.
Fræðsluráð lagði til á fundinum sínum 21. apríl sl. að Reykjanesbær myndi veita öllum börnum í grunnskólum Reykjanesbæjar nauðsynleg námsgögn frá og með næsta hausti. „Gjaldfrjáls námsgögn styðja við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Íslendingar hafa staðfest aðild sína að og Fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar. Þetta skref er liður í því að vinna gegn mismunun barna og styður það að öll börn njóti jafnræðis í námi,“ eins og segir í fundargerð fræðsluráðs frá 301. fundi.
Bæjarstjórn vísaði málinu til bæjarráðs á fundinum sínum 2. maí sl. og var málið tekið fyrir í bæjarráði í morgun. Fjórir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni og einn gegn henni.