Guðmundur Franklín Jónsson skrifar:
„Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er sammála minni hugmynd sem ég hef verið að hamra á og segir mikilvægt að hugsa stórt á erfiðum tímum í hagkerfinu.
Ágúst vill fjórfalda grænmetisframleiðslu á Íslandi, en ég vil reyndar margfalda framleiðsluna mun meira en það og flytja úr landi grænmeti. Breyta má rafmagni í grænmeti og flytja úr landi í stórum stíl og koma þar með upp fjórðu stoðinni undir íslenskt efnahagslíf.
Þingmaðurinn vill stórauka þann stuðning með því að lækka verð á rafmagni fyrir garðyrkju- og grænmetisbændur og taka þátt í flutningskostnaði þeirra. Þá er rétt að spyrja þingmanninn afhverju hann kaus með Orkupakka 3 og hvað ESB segir við þessu.
Þetta er nefnilega ekki hægt í dag vegna samþykktar OP3 og ESB blætis meirihluta Alþingis. Þessu er samt hægt að breyta.“