- Advertisement -

„Getuleysi möppudýra kerfisins“

„Þetta er allt að koma.“

Alþingi „Fjárhagslegt ofbeldi birtist í ýmsum myndum. Of lengi á sjúkrahúsi vegna veikinda — þér er refsað gróflega fjárhagslega fyrir að vera of veikur. Það er hent í viðkomandi nokkrum þúsundköllum sem vasapeningum og hann fer á hausinn fjárhagslega í boði ríkisins. Húsnæðiskostnað, tryggingar, rafmagn, lyfjakostnað og fleira — reikningar — hefur viðkomandi ekki ráð á að borga vegna þess að hann hefur verið of lengi inni á sjúkrastofnun og vegna alvarlegra veikinda, sem er auðvitað dauðans alvara. Að lenda í slysi og þurfa á NPA-aðstoð, þar er annað dæmi um vanrækslu hins ómannúðlega kerfis sem ríkisstjórnir undanfarinna áratuga hafa byggt upp,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson Flokki fólksins á Alþingi rétt í þessu.

„Hreppaflutningar eru fyrst í boði og það fyrir 40 ára einstaklinga inn á hjúkrunarheimili aldraðra. Ef ekki þá er lágmarksþjónusta og aðstandendur hans látnir leysa málið sem kerfið telur vera of erfitt fyrir útlært heilbrigðisstarfsfólk að leysa. Kostnaður, segir sveitarfélagið og bendir á ríkisstjórnina. Kostnaður, segir ríkisstjórnin og bendir á að sveitarfélagið. Og á sama tíma brennur fjölskyldan vegna getuleysis möppudýra kerfisins. Meiri hreppaflutningar fyrir háaldrað fólk sem þarf nauðsynlega á hjúkrunarrýminu að halda vegna veikinda eða slysa. Nei, ættingjar geta einnig séð um þetta, segir kerfið og býður upp á heimahjúkrun einu sinni til tvisvar í viku eða símalínu hjá island.is en ekki hjá hagsmunafulltrúa aldraðra eins og samþykkt var,“ sagði Guðmundur Ingi.

„Börn. Eitt barn í bið eftir þjónustu er einu barni of mikið, hvað þá tugir barna. Og ekki bara tugir, ekki 100 heldur 1.000 börn eru þegar á bið eftir þjónustu sem er þeim lífsnauðsynleg. En á sama tíma erum við tilbúin til að setja 675 milljarða í einkarekna fjölmiðla, 6 milljarða í lúxusráðuneyti á dýrasta svæðinu í bænum, 20 milljarða bankahöll. En að sjá til þess að veikt og slasað og aldrað fólk fái þá þjónustu sem það á rétt á — nei,“ sagði hann og endaði ræðu sína svona: „Þetta er allt að koma.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: