En því miður gerði bæjarstjórnin okkar nákvæmlega þetta sama fyrir stuttu síðan…
Ragnar Sverrisson, kaupmaður á Akureyri, skrifar:
Að vera sjálfum sér samkvæmur
Nú mega bæjarfulltrúar okkar eiga það að þeir ganga hart gegn ákvörðun þeirra fyrir sunnan að leggja niður fangelsið í bænum. Þá er með réttu lögð áhersla á að ekkert samráð var haft við norðanfólkið heldur tekin einhliða ákvörðun – engar viðræður, ekkert samráð og búið. Svona vinnubrögð eru auðvitað ekki til fyrirmyndar og óafsakanleg. En því miður gerði bæjarstjórnin okkar nákvæmlega þetta sama fyrir stuttu síðan þegar hún – án nokkurs samráðs við bæjarbúa eða nágranna okkar – samþykkti að friða skyldi Eyjafjörð fyrir hvers konar fiskeldi án úttektar og mats á valkostum í þeim efnum. Þetta eru auðvitað nákvæmlega sömu vinnubrögð og bæjarfulltrúar gagnrýna með réttu dómsmálayfirvöld nú fyrir. Þetta heitir að gera meiri kröfur til annarra en sjálfs sín.