„Félags- og vinnumarkaðsráðherra ætlar svo að bíða fram yfir áramót með að leggja fram frumvarp um störf ríkissáttasemjara. Af hverju að bíða þegar tíminn er núna?“
Þetta er tilvitnun í nýja Moggagrein Bergþórs Ólasonar þingflokksformanns Miðflokksins. „Það munar um Miðflokkinn,“ skrifar þingflokksformaðurinn í lok greinarinnar.
Það fer eftir hvernig á það er litið hvort muni um Miðflokkinn, eða ekki. Víst er að auknar valdheimir ríkissáttasemjara myndi skaða mjög samband launafólks og atvinnurekenda og ríkisvaldsins. Tilgangur þessa máls er grímulaus. Málið er sett fram til að hindra sem mest stöðu launafólks.
Alþingi ætti frekar að samþykkja lög sem koma í veg fyrir seinkunaráráttu þeirra sem hafa sem mest hag af því að þegar kjarasamningur rennur sitt skeið þá taki nýr samningur við. Auðvitað verður að koma í veg fyrir að fólk taki laun eftir útrunnum samningum.
Launafólk mun seint segja að það muni um Miðflokkinn.
-sme