„Laugavegurinn er orðinn handónýtur sem verslunargata,“ segir Sverrir Bergmann, í Herrahúsinu, í opnu þakkarbréfi til Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.
„Það hefur nú komið á daginn að sú ákvörðun mín að flytja Herrahúsið í annan borgarhluta var hárrétt,“ skrifar Sverrir, sem flutti verslun sína í Ármúla.
„Og viti menn. Veltuaukningin hjá mér á síðasta ári er um 55%! Það er aukning upp á tugi milljóna króna. Þessar tölur ljúga ekki. Þær segja allt sem segja þarf um það hvað Laugavegurinn er orðinn handónýtur sem verslunargata, í það minnsta fyrir verslun í mínum geira.“
„Það sem meira er: Ánægja viðskiptavina minna er ósvikin. Fólki finnst frábært að þurfa ekki að fara niður á Laugaveg. Hér er aðgengið mjög gott, næg bílastæði fyrir framan verslunina, skrifar Sverrir.
„Hvernig dettur mönnum í hug að hægt sé að reka herrafataverslun við lokaða götu á Íslandi, allt árið um kring, í þeirri veðráttu sem hér er? Það er ekki hægt að bera saman veðráttuna hér og t.d. í Kaupmannahöfn, því hér er hún svo miklu verri. Hvaða veruleikafirring er í gangi?“