- Advertisement -

Fyrrverandi þingmenn amast út í Viðreisn

Stjórnmál:

Staksteinar Moggans mæra í dag skrif þingmannanna fyrrverandi Sigurður Kára Kristjánssonar og Óla Björns Kárasonar:

„Sigurður Kári Kristjánsson benti á það í grein hér í Morgunblaðinu í vikunni að þvert á markaðssetningu Viðreisnar sem frjálslynds og borgaralegs flokks þá hafi það sýnt sig að Viðreisn hagi sér í dag „eins og hreinræktaður vinstri flokkur“.

Í þessu sambandi nefnir hann til dæmis skattahækkanirnar, þvert á gefin loforð, og „hernað gegn atvinnulífinu“ með „skattahækkunum, íþyngjandi regluverki, verðlagseftirliti, boðum og bönnum sem eru til þess fallin að grafa undan verðmætasköpun og veikja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja“.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í viðtali við Dagmál Morgunblaðsins lýsti Óli Björn Kárason sömu sjónarmiðum þegar hann sagði að Viðreisn væri „auðvitað hreinn og klár vinstri flokkur“. Og þó að menn tali um frjálslyndi þá sé það bara orðið „merkingarlaust blaður“. Því miður er mikið til í því. Vinstri menn, einkum þeir í dulargervinu, hafa markvisst eyðilagt það orð.

Það er auðvitað rétt hjá þessum tveimur fyrrverandi þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að allt sem Viðreisn gerir sýnir að flokkurinn er vinstri flokkur í raun. Margir hafa hins vegar stutt hann á þeirri forsendu að hann sé til hægri og frjálslyndur í besta skilningi þess orðs. En innantóm orð eru einskis virði og þegar raunveruleikinn afhjúpar blekkinguna blasa staðreyndirnar við.

Þeir sem kusu flokkinn af því að hann væri til hægri eru illa sviknir.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: