„Við getum selt fisk án takmarkana og á sama tíma er ætlast til að hingað sé flutt inn hrátt kjöt án takmarkana,“ skrifar Sigurður Ingi formaður Fransóknarflokks í Moggagrein í dag.
Hann skrifar um dóm um að heimilt sé að flytja inn erlent ófrosið kjöt. Sem hann er sýnilega ósáttur við.
„Málið er hins vegar ekki svo einfalt. Það sem við látum ofan í okkur getur ekki aðeins snúist um krónur og aura eða evrur ef því er að skipta. Ég tel ekki eðlilegt að Evrópusambandið geti skyldað Íslendinga til að taka upp löggjöf sem vinnur gegn heilbrigði þjóðarinnar.“
Hann slær þekktan takt. „Heilbrigði dýra og heilnæmi matar er grundvallaratriði þegar kemur að innflutningi á hráum kjötvörum. Þar standa þær Evrópuþjóðir sem mest framleiða af kjöti einfaldlega ekki á sama plani og Íslendingar.“
Hann fjallar drjúgt um lyfjagjafar í evrópskum landbúnaði, ekki síst sýklalyf. „Þetta er ekki hræðsluáróður. Þetta er ekki pólitík. Þetta eru staðreyndir.“
Hann segir ófrosið evrópskt kjöt vera ógn við lifandi dýr sem og menn, verði að innflutningi.
„Áhrifin eru einnig efnahagsleg, því hvernig eiga íslenskir bændur að keppa við risastór verksmiðjubú meginlandsins í verði? Viljum við þakka íslenskum bændum fyrir að byggja hér upp heilbrigðan bústofn og framleiða heilnæmar vörur með því að leyfa versluninni að flytja inn hrátt kjöt og stefna lýðheilsu í hættu? Viljum við knýja þá til að stíga niður á sama plan og mörg lönd Evrópu eru að glíma við að komast út úr? Framsókn segir nei. Íslenskar sveitir eru ekki menningartengd ferðaþjónusta til sýnis í vorferð Viðreisnar.“
Svo skrifar hann: „Nýverið sýndi rannsókn að bakteríur, ónæmar fyrir sýklalyfjum, hefðu fundist í 13 sýnum af innfluttu grænmeti en ekkert fannst í íslensku grænmeti. Kannski ættum við í ljósi rannsókna að herða frekar löggjöfina þegar kemur að innflutningi á matvælum heldur en að gefa eftir. Framsókn mun leita allra leiða með samstarfsflokkum sínum í ríkisstjórn og á vettvangi Norðurlanda til að koma í veg fyrir að heilsu landsmanna verði fórnað fyrir skammtímahagsmuni.“