Bæjarfulltrúinn og Akureyringurinn, Ingibjörg Ólöf Isaksen, vill verma fyrsta sætið á framboðslista Framsóknar í komandi kosningum.
Hún lýsir yfir andstöðu við fyrirhugaðan þjóðgarð á hálendinu.
Ingibjörg er bæjarfulltrúi á Akureyri. Hún hefur verið bæjarfulltrúi frá árinu 2014, gegndi formennsku í íþróttaráði, umhverfis og mannvirkjaráði og situr nú sem formaður fræðsluráðs og formaður stjórnar Norðurorku.