En vildi samt ekki hleypa þeim til að kjósa.
Sólveig Anna skrifar:
Gaurinn sem vildi ekki leyfa starfsfólkinu að kjósa og var með derring í dag hefur áður komist í fréttir. Vinnueftirlitið lokaði í haust vinnusvæði þar sem hann var að:
Nr.1: Stækka hótelið sitt án þess að hafa til þess leyfi.
Nr. 2: Vinnueftirlitið mat það svo að veruleg hætta væri fyrir líf og heilbrigði starfsmanna á byggingarvinnustaðnum af því að rafmagnssnúrur héngu úr loftinu, óvarin op voru í gólfinu og starfsmenn voru hvorki í öryggisskóm né með öryggishjálma.
Nr.3: Merki voru um að starfsmenn svæfu og hefðust við á vinnusvæðinu.
Frábær gaur sem „vissi“ að starfsfólkið vildi sko ekki fara í verkfall af því að hann borgaði þeim svo góð laun. „Ætla öll að segja, Nei!“ sagði hann eins og ekkert væri. En vildi samt ekki hleypa þeim til að kjósa…