Mark Rutte forsætisráðherra Hollands fór á fund kóngsins og baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Mikill skoðanamunur í málefnum flóttafólks gerði út af við ríkisstjórnina.
Athygli vakti að hann ók sjálfur sínum einkabíl í þessum erindum, gömlum Saab.
Sá kostar eflaust talsvert minna en hver hinna svörtu og dýru ráðherrabíla sem hér eru.
Eins má gera ráð fyrir að Mark sé kannski hálfdrættingur í launum á við Katrínu okkar. Ólíkt hafast þeir að forsætisráðherrarnir.
Þú gætir haft áhuga á þessum