Styrmir Gunnarsson skrifar að venju í laugardagsmoggann. Þar kemur hann, enn og aftur, að því sem hann telur hafa, öðru fremur, aukið ójöfnuð í samfélaginu. Yfir til Styrmis:
„Engin ein ákvörðun hefur átt meiri þátt í því að skapa ójöfnuð í okkar samfélagi en sú ákvörðun vinstri stjórnar, sem hér sat m.a. með aðild Alþýðuflokks og Alþýðubandalags, að gefa framsal veiðiheimilda frjálst, án þess að taka upp veiðigjöld um leið. Á það minnast arftakar þeirra flokka aldrei, þegar þeir tala um ójöfnuð.“
Grein Styrmis er mun lengri.