Fjársvelti í heimsfaraldri
Aðsent: Ungir jafnaðarmenn skora á þingmenn allra stjórnmálaflokka að sameinast tafarlaust um markvissar aðgerðir til að verja heilbrigðiskerfið og hindra að þjónusta við sjúklinga verði skert með stífum aðhaldskröfum á tímum heimsfaraldurs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Ungra jafnaðarmanna um stöðu heilbrigðiskerfisins á tímum heimsfaraldurs COVID-19. Tilefnið eru fréttir af aðhaldskröfu á Landspítala sem nemur 4,3 milljörðum króna á næsta ári.
- Húsnæði Landspítalans er úrelt og plássleysið viðvarandi enda hefur biðin eftir nýjum spítala staðið yfir í meira en tvo áratugi.
- Á meðan er reynt að plástra opin sár Landspítalans sem horfir fram á 4,3 milljarða króna „hagræðingarkröfu“ næsta árið. Kröfu sem mun, ef haldið til streitu, koma til með að skerða sjúkrahússþjónustu og torvelda styttingu biðlista eftir heilbrigðisþjónustu sem hafa orðið til vegna kórónuveirufaraldursins.
- Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur kemur fram að íslenska heilbrigðiskerfið eigi að standast samanburð við það sem best gerist í heiminum, sem og að allir landsmenn eigi að fá notið góðrar þjónustu, óháð efnahag og búsetu.
- Í nýjustu skýrslu OECD um fjármögnun heilbrigðiskerfa, ,,Health at a Glance 2020”, kemur fram að Ísland varði um 7,3% af vergri landsframleiðslu í opinbera heilbrigðisþjónustu árið 2019 sem er um tveimur prósentustigum lægra en hlutfall Svíþjóðar og Noregs.
- Ljóst er að viðhaldsskuldin sem verður til þegar „hagrætt“ er með frestun á viðhaldi húsnæðis og búnaðar hefur alvarlegar og langvarandi afleiðingar í för með sér.
- Ungir jafnaðarmenn vilja að á Íslandi sé rekið öflugt opinbert heilbrigðiskerfi. Innan þeirrar framtíðarsýnar rúmast ekki vanræksla á opinbera heilbrigðiskerfinu eða hugmyndir um tilslakanir sem gætu falið í sér að heilbrigðisstarfsfólk þurfi að neita bráðveikum einstaklingum um öndunarvélar.
- Í COVID-19 faraldrinum sem ríður nú yfir skora Ungir jafnaðarmenn á stjórnarflokkana og alla flokka á Alþingi að standa vörð um opinbera heilbrigðiskerfið, sjá til þess að hraða megi nauðsynlegum framkvæmdum frekar en fresta þeim og að ráðist verði í kraftmiklar aðgerðir til að laða faglært fólk til starfa.
- Þá skora Ungir jafnaðarmenn á forystu og flokksstofnanir Sjálfstæðisflokksins að taka skýra og afgerandi afstöðu gegn málflutningi þingmanna flokksins sem kalla eftir því að lífi og heilsu fólks verði fórnað og veirunni gefinn laus taumurinn.