Leiðari
Það var í nóvember 2017 sem fulltrúar nokkurra stjórnmálaflokka funduðu heima hjá Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknar, að Syðra-Langholti í Hrunamannahreppi. Katrín Jakobsdóttir var með umboð forseta til að mynda ríkisstjórn.
Við blasti að ef stjórn yrði mynduð að flokkarnir sem reyndu stjórnarmyndun væri teflt á tæpasta vað. Samtals höfðu flokkarnir 32 þingmenn en aðrir flokkar 31. Öllum var vandi á höndum. Eftir nokkra fundi sleit Sigurður Ingi viðræðunum, eða dró Framsókn út úr menginu. Þá var sjálfhætt.
Ákvörðun Sigurðar Inga kom á óvart. Hvaða skýringu gaf formaður Framsóknar? Jú, hann hafði áttað sig á að ef tekist hefði að mynda ríkisstjórn væri hún aðeins með eins manns meirihluta. Þetta vissum við öll, alla vega flest.
Nú er sá sem fattaði eftir nokkra fundi að flokkarnir sem sátu saman á fundum um myndun ríkisstjórnar, orðinn fjármála- og efnahagsmálaráðherra. Vonandi er að honum hafi farið fram í stærðfræði.
-sme