Fréttir

Fer frá Höllu Hrund og til Arnars Þórs

By Miðjan

April 29, 2024

Forsetakosningar Jón Steinar Gunnlaugsson hefur skipt um skoðun hvað varðar frambjóðendur til embættis forseta Íslands. Jón Steinar skrifar:

„Mér varð á í messunni þegar ég setti inn færslu um stuðning við Höllu Hrund Logadóttur, að vísu að því tilskildu að hún myndi ekki beita sér gegn virkjunum ef hún kæmist í stólinn. Nú hefur mér verið sýnt efni sem sýnir að konan er einmitt á móti orkuvinnslu þó að hún sé náttúruvæn. Það þýðir að stuðningur minn við hana var byggður á misskilningi og er því dreginn til baka. Sá eini sem unnt er að styðja er því eftir sem áður Arnar Þór Jónsson.“