„Höldur ehf., sem rekur m.a. Bílaleigu Akureyrar, hagnaðist um 1,8 milljarða króna á síðasta ári og nánast tvöfaldaði hagnað sinn frá fyrra ári. Tekjur námu 13,5 milljörðum króna og jukust um 5,2 milljarða milli ára.
Steingrímur Birgisson er forstjóri Höldurs en í ársreikningi segir að með góðum upplýsingakerfum, breiðum bílaflota og öflugu starfsfólki telji stjórnendur að rekstrarhæfi félagsins sé tryggt um fyrirsjáanlega framtíð.“
Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu.
Skemmst er að minnast þess að bílaleigur í landinu fengu gefinn einn milljarð úr ríkissjóði. Milljarðurinn góði átti að vera styrkur til kaupa á rafbílum.
Þetta er enn eitt hallærismál ríkisstjórnarinnar.