Fatlað fólk svívirt í orði
- af þeim sem fara með umboð okkar á Alþingi.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar: Mér er orða vant, fréttir síðustu daga eru þær sem ég bjóst aldrei við að sjá. Það að fatlað fólk sé svívirt í orði af þeim sem fara með umboð okkar á Alþingi er sorglegur vitnisburður um þá sem þar tala.
Þetta er fólkið sem situr í umboði okkar fólksins í landinu á Alþingi. Ég er sorgmædd og döpur vegna okkar allra sem treystum því að fólk sem situr í okkar umboði sinni starfi af heilindum og virðingu við allt fólk. Hugur minn er hjá Freyju Haraldsdóttur sem er ein okkar virtustu frumkvöðla og aktívista í baráttu fyrir fatlað fólk. Svona gerir maður ekki.
Fengið af Facebooksíðu Þuríðar Hörpu.
Þú gætir haft áhuga á þessum