- Advertisement -

Fannst Daði Már vera full hvumpinn

Sigríður Á. Andersen á Alþingi í dag:

Hann sá
ofsjónum yfir
öllu því.

„Mig langaði að beina þeirri spurningu fyrst og fremst til hæstvirts ráðherra hvort hún mæti hingað til þings núna í upphafi þingvetrar uppgefin, hvort hæstvirtur forsætisráðherra sé uppgefin. Ég var nefnilega á fundi í morgun sem haldinn var af Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og var þar m.a. með hæstvirtur fjármálaráðherra. Þar hafa menn miklar áhyggjur af skattlagningu sem boðuð er. Þar á bænum hafa menn auðvitað sérstakar áhyggjur af bankaskattinum og umræður voru um það. Hæstvirtur fjármálaráðherra var með mér í pallborði þar og það lá svo illa á honum að ég treysti mér ekki til þess og fannst ekki á það reynandi að bera upp frekari spurningar á hann hér. Mér fannst hann nefnilega hafa svolítið gefist upp á verkefninu, þ.e. verkefninu við efnahagsstjórnina. Sex milljarða kr. viðbótarskatt á bankana réttlætir hann með aukningu ríkisútgjalda núna fyrir mörgum árum síðan í tíð annarrar ríkisstjórnar. Það er enn þá verið að afsaka útgjöldin og skattlagninguna með vísan til heimsfaraldursins eða jarðeldanna eða hvað það nú er. Hann sá ofsjónum yfir öllu því.

Það kom fram eitt áhugavert á þessum fundi, að sex milljarða kr. viðbótarskattur á bankana gæti haft þá afleiðingu að draga úr útlánagetu þeirra um 50 milljarða. Það munar um minna þegar þarf að fjármagna húsnæðislán fjölskyldnanna. Þetta er bara eitt dæmi um þessar miklu skattahækkanir og útgjaldaaukningu sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpinu og bandorminum sem verður ræddur hérna í dag. Þess vegna langaði mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hún í raun gefist upp á verkefninu og telur hún það vænlegt til árangurs fyrir hagsæld Íslands að reyna að skattleggja Íslendinga inn í hagsældina? Telur hæstvirtur forsætisráðherra, sem er nú hagfræðimenntuð, að það sé vænlegt til árangurs?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Kristrún Frostadóttir á Alþingi í dag:

„Ég þakka háttvirtum þingmanni fyrirspurnina og fyrir að velta fyrir sér hvernig ég er upplögð. Ég er reyndar örlítið syfjuð, enda vaknaði ég klukkan tvö í morgun. Ég var í sólarhringsferð í Lapplandi að hitta leiðtoga bandalagsríkja í Rovaniemi þar sem var verið að tala til að mynda um málefni á okkar slóðum. Það breytir því ekki að ég er bara frekar glöð.

Þetta er það
minnsta á þessum
áratug.

Ég er frekar glöð að hafa náð markmiði í þessum fjárlögum um að snúa við rekstri ríkissjóðs. Þetta er ekki auðvelt. Þetta er ekki gert með einni aðgerð. Hér hefur oft verið talað um slagorð; slagorðið að það eigi bara að skera niður, eins og það sé ekkert mál að taka við ríkinu eins og það er, eins og búið er að byggja það upp yfir mörg ár og áratugi og bara ætla að sneiða allt niður og taka 5% af landsframleiðsluhlutfallinu þarna inni. Ef við horfum bara á hvað við erum að gera þá eru þetta kannski um 80 milljarðar sem er verið að leita að þarna til að loka umræddu gati. Um 44 eða 45 milljarðar eru á útgjaldahliðinni. Útgjöld eru um 30% af landsframleiðslu. Þetta er það minnsta á þessum áratug. Það liggur alveg fyrir. Þetta hlutfall hefur ekki farið niður fyrir 30% í mörg, mörg ár. Það er ekkert hæft í því að það sé verið að láta útgjöld alveg í friði og það er með mestu útgjaldaráðstafanir sem við höfum séð í 10–15 ár. Vissulega er líka verið að sækja tekjur, enda hefur það verið vandamálið að það hefur gengið illa að loka gatinu, m.a. vegna þess að það hafa verið gerðir alls konar, hvað á ég að segja, samningar, það hafa verið aukningar í tilfærslukerfum í gegnum árin, hlutir sem við erum að hluta til að taka á en þú gerir ekki á einni nóttu, en það hefur ekki verið vilji til þess að mæta þessu líka með sanngjarnri skattheimtu, ef svo má segja. Ég á ekki erfitt með það að leggja auknar álögur, ef það er upplifun fólks, á bankana. Þegar bankaskatturinn var lækkaður á sínum tíma fyrir þessi fyrirtæki sem eru að skila um 100 milljarða hagnaði þá var það á þeim forsendum að þetta myndi skila sér í lægri gjöldum til neytenda. Síðasta ríkisstjórn gerði m.a. úttekt á þessu og komst að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki verið raunin, þannig að hér er verið að stíga skref í átt að eilítilli hækkun en hún er ekki jafn mikil og hún var áður, m.a. á vakt síðustu ríkisstjórnar.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: