Neytendur Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á nýjum skólabókum í 6 bókabúðum á höfuðborgarsvæðinu sl. þriðjudag. Við samanburð á sambærilegri könnun sem gerð var í fyrra kemur í ljós að verð á þeim rúmlega tuttugu titlum sem bornir voru saman hefur í meirihluta tilvika lækkað á milli ára.
Verslunin IÐNÚ hefur lækkað verð á næstum öllum þeim bókatitlum sem til voru í báðum mælingum. Í verslunum A4 og Griffils hefur verð oftar lækkað en hækkað. Hjá Bóksölu Stúdenta og Forlaginu Fiskislóð hefur verð í um helmingi tilvika staðið í stað á milli ára. Eymundson er eini bóksali landsins sem hefur oftar hækkað verð á skólabókum en lækkað.
Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miða við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ þann 20.8.2013 og 19.8.2014. Rétt er að árétta að tekin eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar.
Kannað var verð í eftirtöldum verslunum: Bóksölu stúdenta, Eymundsson, A4, Forlaginu Fiskislóð, Griffli og Bókabúðinni IÐNÚ.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Sjá nánar hér.