„Tugþúsundir landsmanna finna fyrir þessum veruleika á matarkörfunni og á húsnæðislánunum sínum og það er pólitísk ákvörðun í þessu samhengi að halda sig við krónuna.“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.
„Á Íslandi búa tvær þjóðir í dag; sú sem lifir í krónuhagkerfinu og sú sem gerir upp í evrum og dollurum. Heimilin og litlu fyrirtækin tilheyra krónunni. Evran er fyrir stóru fyrirtækin. Það er gott að stórfyrirtækin geti starfað í öruggara umhverfi og notið betri lánskjara en þetta öryggi á auðvitað að vera markmiðið fyrir þjóðina alla. Íslensk heimili eiga að geta notið sama öryggis og atvinnulífið og íslenskir bændur eiga að geta notið sömu lánskjara og íslenskur sjávarútvegur,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Viðreisn.
„Eftir 14 stýrivaxtahækkanir í röð nálgast Ísland rússneskt vaxtastig. Þessar vaxtahækkanir duga ekki til. Verðbólga er enn og aftur á uppleið. Tugþúsundir landsmanna finna fyrir þessum veruleika á matarkörfunni og á húsnæðislánunum sínum og það er pólitísk ákvörðun í þessu samhengi að halda sig við krónuna. Þau sem verja óbreytt ástand eiga þá að svara því hvers vegna þeim þykir réttlætanlegt að heimilin taki á sig kostnaðinn sem fylgir íslensku krónunni,“ sagði hún.
„Staða fólks til að mæta vaxtahækkunum er ekki jöfn, hvorki hvað varðar tekjur né hvað varðar á hvaða æviskeiði það er statt. Háir vextir eru sérstaklega þungir fyrir ungt fólk og barnafjölskyldur, fólk sem er með tiltölulega nýleg lán á sama tíma og nauðsynleg útgjöld heimilis eru hlutfallslega mikil. Þetta er réttlætismál og þau sem halda því fram að íslenskur veruleiki sé einhvern veginn þannig að hann þoli ekki stöðugan gjaldmiðil þurfa þá að svara því hvað það er hjá frændum okkar í Færeyjum sem gerir að almenningur er í góðri sambúð við danska krónu sem er tengd við evru. Þar er mikill hagvöxtur, sjávarútvegur undirstöðuatvinnugrein, ferðaþjónusta vaxandi, íbúum hefur fjölgað umfram íbúðauppbyggingu; allt eins og á Íslandi en vaxtakjörin langtum betri. Eitt stærsta velferðarmálið er að koma heimilunum út úr vítahring krónunnar. Leynist svarið kannski bara í Færeyjum?“