- Advertisement -

„Erum dálítið sér á báti á hinum pólitíska ás“

„Því róðurinn mun þyngjast hratt aftur. Og aftur. Lærum af sögunni. Gerum betur, sýnum metnað og framsýni.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Stjórnmál Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar hélt ræðu við upphaf haustþings flokksins. Þar sagði hún meðal annars:

„Við í Viðreisn erum nefnilega með rödd sem er ólík öðrum. Erum dálítið sér á báti á hinum pólitíska ás. Við tölum óhrædd fyrir frjálsum markaði og sterku efnahagskerfi í opnu, alþjóðlegu samfélagi. Og leggjum okkur fram við að tryggja að kerfin okkar séu einföld, sanngjörn og grípi fólkið okkar í sterkt þéttofið velferðarnet, þegar á móti blæs.  Og við erum eini flokkurinn – eini flokkurinn á þingi – sem hefur nægjanlegt sjálfstraust til að standa með þeirri stefnu að hér þurfi  einfaldlega að skipta út gjaldmiðli sem þjónar ekki hagsmunum fólksins í landinu. Viðreisn er eini flokkurinn sem er með lausn fyrir heimilin í landinu til skemmri tíma en lítum óhrædd til lengri tíma lausna. Af hverju – því við vitum skyndilausnir og plástrar gera lítið til að létta fólki róðurinn. Því róðurinn mun þyngjast hratt aftur. Og aftur. Lærum af sögunni. Gerum betur, sýnum metnað og framsýni.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: