„Allt er þetta með miklum ólíkindum og sérstaklega umhugsunarvert fyrir þá sem hafa hallað sér að Viðreisn en telja sig ekki mjög langt til vinstri í stjórnmálum, að sá flokkur ber einna mesta ábyrgð á Skuldaplaninu og því hvernig komið er fyrir Reykjavíkurborg.“
Þetta er niðurlag leiðara Moggans í dag, sem sennilegast er skrifaður af Davíð Oddssyni, fyrrum borgarstjóra.
Hér á Miðjunni hefur því verið haldið fram að vegna sterkrar stöðu Viðreisnar innan borgarinnar sé þar starfandi hægrisinnaður meirihluti.