Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Kraganum, kjördæmi Bjarna formanns og Óla Björns þingflokksformanns, skrifar grein i Mogga dagsins vegna greinar sem Óli Björn birti þar í gær. Sýnilega er mikill órói í Sjálfstæðisflokknum. Óvíst er hverjar afleiðingarnar verða. Víst er að það fækkar í bakvarðarsveit Bjarna formanns. Arnar Þór skrifar:
„Í Morgunblaðsgrein í gær, 19. júlí 2023, gerir Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sjálfstæðisstefnuna að umfjöllunarefni. Óli Björn er góður penni og vert er að þakka honum fyrir að beina athygli lesenda að þeim góða grundvelli sem Sjálfstæðisflokkurinn er reistur á. Grunnviðmið eru mikilvæg, því stefnumörkun miðast við þau, en missi menn sjónar á gildum sínum er voðinn vís. Af öllu framangreindu leiðir að það er skylda kjósenda að hafa eftirlit með því hvernig kjörnum fulltrúum gengur að framfylgja stefnunni. Í anda þeirra sjónarmiða sem Óli Björn nefnir í grein sinni hef ég talið ástæðu til að spyrja hvort forysta flokksins og meirihluti þingflokks hans hafi tapað áttavitanum og týnt stefnunni, gleymt tilgangi sínum, orðið viðskila við hlutverk sitt og glatað þeirri framtíðarsýn sem sjálfstæðisstefnan birtir. Í flokki sem aðhyllist málfrelsi er ekki bannað að spyrja slíkra spurninga og kalla eftir svörum.
Ekki er óeðlilegt þótt almennir sjálfstæðismenn, undirritaður þar á meðal, geri athugasemdir við útþenslu ríkisins á vakt flokksins, andmæli frumvarpi utanríkisráðherra um bókun 35, skori á þingflokkinn að standa gegn aðgerðaáætlun forsætisráðherra gegn tjáningarfrelsinu, mótmæli skattahækkunum og kalli eftir því að þingmenn standi tryggan vörð um fullveldi Íslands og stjórnarskrá lýðveldisins.
Sjálfstæðisstefnan er dýrmæt perla sem kjörnum fulltrúum ber að verja og fægja í verki, en ekki með innantómum frösum. Hafandi fylgst náið með framgöngu kjörinna þingfulltrúa hef ég vissar áhyggjur af því að sjálfstæðisstefnan margumtalaða sé að verða að innantómu gluggaskrauti í þingflokksherbergi Sjálfstæðisflokksins. Ef mönnum er umhugað um að gæða stefnuna lífi þarf að sýna það í verki. Ég skora á þingmenn flokksins að ganga þar fremstir í flokki.“
Víst er spennandi að fylgjast með innanmeinum Sjálfstæðisflokksins. Arnar Þór notaði fyrirsögnina: Sjálfstæðisstefnan er dýrmæt perla. Hér er stuðst við hana. Hún er lítið eitt breytt.
-sme